BRAGGINN VEISLUSALUR
Í Nauthólsvík stendur látlaus Bragginn og lætur lítið yfir sér í góðu samræmi við nátturu og umhverfi.
Innandyra er eins og að stíga inní annan heim, bogadregið þakið og fallegt og vandað yfirbragð myndar alveg einstaka og notalega stemningu.
Fullkomið hljóðkerfi með micrafón er á svæðinu, skjávarpi og skjáir og LED lýsing er í salnum þar sem hægt er að breyta um liti og styrk ljóssins eftir stemningu og einstakega flottur Bar er fyrir miðju salarins.
Fyrir utan er skemmtilegt útisvæði fyrir borð og stóla sem nýtist vel á sólríkum dögum. Þar er einnig hægt að setja upp Veislutjald og með því tvöfalda gestafjölda Braggans.
Bragginn og Nauthóll sjá um veitingar í Bragganum og býður uppá fjölbreytt úrval veitinga allt eftir tilefni.
Bragginn er aðeins leigður út með veitingum.
BRAGGINN
+ 70 manns í sitjandi borðhald.
+ 100 manns í standandi veislu eða móttökur.
+ Vandaður og fallegur salur.
+ Fallegt útisvæði og gott aðgengi.
+ Fullkomið hljóðkerfi, skjávarpi og stillanleg LED lýsing fyrir mismunandi stemningu.
NÁÐHÚS
+ 34 manns í sitjandi borðhaldi.
+ 50 manns í standandi veislur og móttökur.
+ Risaskjár og hljóðkerfi er í salnum.
+ Mögulegt að setja upp stórt veislutjald við salinn